top of page

Hvað viltu rækta í þínu lífi?

IMG_5078_edited.jpg
Dæmi um skapandi ferli

Námskeið og þjálfun

 

Pitch þjálfun

 

Námskeið fyrir listamenn sem undirbýr þá fyrir að halda stutta kynningu (pitch) á verkum sínum. Námskeiðið samanstendur af hóptíma, einstaklings-viðtölum og æfingu með endurgjöf. 

Innan ramma listahátíða er listamönnum oft boðið að halda stutta kynningu fyrir fagfólk úr bransanum. Hvernig getur þú sagt frá þér og þinni list á  upplýsandi og áhugaverðan hátt og um leið gefið innsýn inn í hver þú ert og hvað þú stendur fyrir? 

​Ég hef þjálfað listamenn fyrir þessar aðstæður á eftirfarandi hátíðum: ICE HOT Oslo, Moving Balkans og Reykjavík Dance Festival.

 

 

Hvað nú? 

 

Námskeið fyrir listamenn, þar sem við beitum m.a. aðferðum markþjálfunar til að átta okkur á hvar við erum stödd í dag og hvert við viljum fara. Námskeiðið hentar bæði ungum og reyndari listamönnum, sem vilja vera við stjórnvölinn í sínu lífi. Hvað gefur þér orku og gleði? Hvar fær listamaðurinn í þér sína næringu? Hvernig getur þú skapað það líf sem þú vilt lifa?

Skipulag námskeiðs:

  • 3 x 3 klst hóptímar  

  • 1 einkatími á mann

  • Hópastærð 6 - 10 manns

  • Námskeiðið spannar 3 - 4 vikur

bottom of page